
Vöruupplýsingar
Ultra Magnesíum í hæsta gæðaflokki. Magnesíum spilar lykilhlutverk í starfsemi líkamans svo sem að stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins, vöðvastarfsemi, viðhaldi beina og að draga úr þreytu og lúa.
2 töflur á dag tekið með aðal máltíð dagsins. Tekið inn með köldu vatni eða drykk. Má ekki tyggja.
Notkun
Tvær töflur innihalda 375 mg af Magnesíum Hydroxíð. Inniheldur engin litarefni, rotvarnarefni og er laktósalaust.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Ábyrgðaraðili: Icepharma