Hoppa yfir valmynd
Lausasölulyf

Rósroði

Rosazol krem 10 mg/g 25 g

Rosazol inniheldur metrónídazól 10 mg/g og er notað við húðsjúkdómnum rósroða.

3.335 kr.

Vöruupplýsingar

Rosazol inniheldur metrónídazól 10 mg/g og er notað við húðsjúkdómnum rósroða.

Rósroði kemur einkum fram sem roði eða rauðir bólguhnúðar á enni, nefi, kinnum og höku. Rósroði er algengastur hjá konum milli 30 og 50 ára. Áður en meðferð með Rosazol kremi hefst skal læknir staðfesta sjúkdómsgreininguna.

Notkun

Við venjulega meðferð er kremið borið á 2 sinnum á dag á þau svæði í andlitinu sem meðhöndla skal eftir að húðin hefur verið hreinsuð vel. Notið milda sápu. Þú mátt nota snyrtivörur sem ekki valda bólum og hvorki þurrka húðina né draga hana saman eftir að Rosazol krem hefur verið borið á. Meðferð varir yfirleitt í þrjá til fjóra mánuði. Hafðu samband við lækninn ef þér finnst meðferðin ekki hjálpa.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Rosazol inniheldur metrónídazól

Hjálparefni: Mjólkursýra; natríumlárýlsúlfat; cetýlalkóhól; cetosterýlalkohól, fleytir (gerð A); hreinsað vatn.