
Lausasölulyf
Nefúðar
Mometason Apofri, nefúði 50 mcg/sk 140 skammtar
Til meðferðar við ofnæmiskvefi og stöðugri nefslímubólgu.
1.878 kr.
Vöruupplýsingar
Til meðferðar við ofnæmiskvefi og stöðugri nefslímubólgu (ofnæmi, svo sem fyrir rykmaurum og dýrahárum) hjá fullorðnum og börnum, 3 ára og eldri. Mometason Apofri nefúði er ætlaður til meðferðar á sepum í nefi hjá fullorðnum, 18 ára og eldri.
Notkun
Fullorðnir og börn, 12 ára og eldri: Venjulegur ráðlagður skammtur er 2 úðaskammtar (50 míkróg/skammt) í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 200 míkrógrömm). Þegar náðst hefur stjórn á einkennum má minnka skammt í einn úðaskammt í hvora nös (heildarskammtur 100 míkrógrömm) einu sinni á dag til að viðhalda meðferðinni. Ef einkenni lagast ekki má auka skammt í að hámarki 4 úðaskammta í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 400 míkrógrömm). Ráðlagt er að minnka skammt þegar stjórn hefur náðst á einkennum. Börn á aldrinum 3-11 ára: Venjulegur ráðlagður skammtur er einn úðaskammtur (50 míkróg/úðaskammt) í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 100 míkrógrömm). Börn mega einungis nota Mometason Apofri samkvæmt læknisráði.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Virkt efni: Mometasonfúróat. Hjálparefni með þekkta verkun: Benzalkon klóríð.