Hoppa yfir valmynd
Húðvörur

Farðar

Pharmaceris F Foundation 03 30ml

Mjúk, frískleg og slétt húð sem hefur jafnan og eðlilegan húðlit. Fallega áferð farðans má þakka nýjustu uppgötvun vísindamanna: NEW GENERATION COVERAGE SYSTEMTM. ,sem gerir það að verkum að farðinn hylur án þess að vera þykkur eða mynda grímu.

3.398 kr.

Vöruupplýsingar

Fyrir allar húðgerðir einnig þá sem hafa viðkvæma húð eða rósroða. Hann hylur misfellur eins og roða, ör, bauga og bólur. Veitir fallega og eðlilega áferð. Farðinn hefur verið prófaður fyrir viðkvæma húð. Rannsóknir sýndu fram á að farðinn hylur nánast allar misfellur.

Notkun

Berið farðann á hreina húð. Það þarf lítið af farðanum. Bíðið þar til hann hefur jafnað sig.

Innihaldslýsing

Innihaldsefni: Sodium hyaluronate – Veitir raka og verndar húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum. Verndar húðina gegn rakatapi. Milk thistle extract – Inniheldur silymarin sem er öflugt andoxunarefni og vinnur gegn sýkingu. Það ver húðina gegn UV geislum og stuðlar að eðlilegri endurnýjun húðarinnar. Honeysuckle flower extract – Mýkir húðina og gerir hana sléttari. Vitamin B3 – Hjálpar til við að styrkja rakabúskap húðarinnar. Örvar efnaskipti kollagens og eykur teygjanleika húðarinnar. Verndar gegn skaðlegum UV geislum og ýtir undir endurnýjunarferli húðarinnar svo húðin verður stinnari og sléttari. 30 ml